Hleð Viðburðir

Systkinin Iðunn, Ingólfur, Kristín og Stefán börn Öddu og Steins í Tungu, Seyðisfirði bjóða til kvöldvöku öðru sinni vegna fjölda áskorana fimmtudaginn 12.apríl kl.20.00

Systkinin úr Tungu hafa sýslað margt um dagana. Á ferilskrá þeirra gefur að líta blöndu af hinu og þessu í ýmsum hlutföllum. Hér skulu nefnd nokkur dæmi: Ritstjórn, þýðingar, tónlist samin og flutt, bókaskrif fyrir alla aldurshópa, bæði ljóð og laust mál, ýmsar lækningar og síldarsöltun, beitning og önnur fiskvinnsla, leiðsögn, dægurlagatextagerð, kennsla á öllum aldursstigum, talsíma- og sendilsstörf, sýnataka og efnagreining, verksmiðjuvinna á Mývetningaslóð og Katanesi, bæjarvinna og afgreiðslustörf í gamla kaupfélaginu heima, grafið fyrir sjónvarpsstreng, gamalmenna gætt í Danaveldi, skrifstofustörf.

Og hver er nú hver?

Eins og aðra fimmtudaga eru veitingastofur Hannesarholts opnar til kl.22. Gleðistund 17-19 (happy hour), lifandi tónlist 18.30-20, og kvöldverður fyrir þá er það vilja. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is