Hleð Viðburðir

Leikhúslistakonur 50+ standa fyrir leiklestri á leikverkum Svövu Jakobsdóttur í Hannesarholti um þessar mundir. Verkið Lokaæfing, sem frumflutt var í Þjóðleikhúsinu árið 1983, verður leiklesið undir stjórn Jakobs S.Jónssonar miðvikudaginn 11.apríl kl.20 og sunnudaginn 15.apríl kl.16. Leikarar eru Þórey Sigþórsdóttir, Íris Tanja Flygenring og Valdimar Örn Flygenring.

Verkefnisstjóri er Þórunn Magnea Magnúsdóttir