Hleð Viðburðir

Leikhúslistakonur 50+ standa fyrir leiklestrum á leikverkum Svövu Jakobsdóttur á vormánuðum í Hannesarholti. Æskuvinir var frumflutt hjá Leikfélagi Reykjavíkur árið 1976. Verkið verður leiklesið undir stjórn Maríu Kristjánsdóttur miðvikudaginn 4.apríl kl.20 og sunnudaginn 8.apríl kl.16. Leikendur eru Arnar Jónsson, Guðrún S.Gísladóttir, Sigurður Skúlason, Jakob S.Jónsson og Jörundur Ragnarsson. Tilboð á kaffi og vöfflum á undan leiklestrinum á sunnudag.

Verkefnastjóri: Þórunn Magnea Magnúsdóttir