2026-03-03T00:00:00+00:00
Hleð Viðburðir

Sunnudaginn 14. febrúar munu Sigríður Thorlacius og Hjörtur Ingvi Jóhannsons stýra söngstund í Hljóðbergi. Sigríður leiðir sönginn og Hjörtur Ingvi leikur undir á flygilinn. Textar birtast á skjá til upprifjunar.

Íslendingar hafa löngum ræktað sönghefðina á mannamótum og í rútubílum. Hannesarholt vill leggja sitt af mörkum til að hlúa að sönghefðinni og bjóða uppá samsöng fyrir alla, unga sem aldna, Íslendinga sem aðflutta, undir stjórn kunnáttufólks.  Veitingahúsið verður opið á fyrstu hæð hússins, og hægt verður að fá sér kaffi og meðlæti á undan eða eftir söngstundinni.

Hér má sjá myndband frá fyrstu söngstundinni: http://youtu.be/Dmzbs28RWQ4

Aðgangseyrir kr. 1.000 – börn fá frítt inn í fylgd með fullorðnum.

Upplýsingar

Skipuleggjandi

Staðsetning

Go to Top