

Syngjum saman í Hannesarholti með Þórunni Björnsdóttur
17. maí @ 14:00 - 15:00
Þórunn Björnsdóttir stýrir Syngjum saman í Hannesarholti laugardaginn 17.maí kl.14-15.
Þórunn var sú sem upphaflega startaði söngstundum í Hannesarholti ásamt innanhúsfólki vorið 2013 og stýrði kórstarfi í Kópavogi alla sína starfsævi, eða í 40 ár. Þórunn lauk meistaraprófi í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst með verkefninu Tónlist fyrir alla, og hefur alla sína tíð látið muna um sig í að dreifa söng og gleði um heimsbyggðina. Textar á tjaldi og allir syngja með, allar kynslóðir velkomnar. Ókeypis inn.