Syngjum saman skátalögin með Pálmari Ólasyni og Magneu Tómasdóttur
25/02/2018 @ 14:00
| kr.1000Pálmar Ólason og Magnea Tómasdóttir stjórna fjöldasöng í klukkustund þar sem textar birtast á tjaldi og allir taka undir. Að þessu sinni eru skátalögin í forgrunni, enda átti upphafsmaður skátahreyfingarinnar, Baden Powell afmæli í vikunni, þann 22.febrúar. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 króna aðgangseyri.
Hannesaholt vill hlúa að söngarfi þjóðarinnar og býður þess vegna uppá fjöldasöngstundir á 2-3 vikna fresti. Allir velkomnir!