Hleð Viðburðir

Þóra Jónsdóttir, ljóðskáld og myndlistakona opnar sýningu á olíumálverkum laugardaginn 16. september kl. 15:00. Hjörtur Pálsson, rithöfundur og prestur, les úr ljóðum hennar við opnunina. Sýningin ber nafnið – Fjarskinn er blár – og stendur í fjórar vikur. Sýningin er sölusýning.

Þóra Jónsdóttir

Þóra Jónsdóttir er fædd 17. janúar 1925 á Bessastöðum á Álftanesi en ólst upp að Laxamýri í Suður-Þingeyjarsýslu. Hún varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri og lauk síðar prófi frá Kennaraskóla Íslands. Þóra starfaði á Borgarbókasafni Reykjavíkur árin 1975 til 1982.

Þóra er bæði ljóðskáld og málari. Fyrsta ljóðabók hennar, Leit að tjaldstæði, kom út árið 1973 og eru bækur hennar orðnar alls tólf talsins; Ljóð, örsögur og þýðingar. Þóra hefur hlotið ýmsar viðurkenningar, m.a. úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins.

Frá unga aldri var Þóra drátthög en ekki varð úr formlegu námi í myndlist fyrr en líða tók á ævina. Fyrst á námskeiðum hjá Sigfúsi Halldórssyni, tónskáldi og málara, og síðan við Myndlistarskólann í Reykjavík frá árinu 1982 til 1988.

Þóra hefur gefið út 12 ljóðabækur og haldið fjórar sýningar á verkum sýnum:

– Gallerí Svartfugl á Akureyri 1998

– Café Presto í Kópavogi 2003

– Bóksafni Seltjarnarness 2008

– Norræna húsinu 2014

Upplýsingar

Dagsetn:
16/09/2017
Tími:
15:00 - 17:00
Viðburður Category:
Tök Viðburður:
,

Staðsetning

Veitingastofur 1.hæð