Hleð Viðburðir
Söngvaskáldið Svavar Knútur heldur tónleika í Hannesarholti þann 10. mars næstkomandi kl. 14.00.
Svavar Knútur hefur getið sér gott orð, ekki einungis fyrir sín eigin lög, heldur einnig fyrir meðferð sína á sígildum söngperlum Íslands. Hann hefur þó ekki haldið tónleika sem sérstaklega eru tileinkaðir þessari tónlist síðan árið 2011. Nú hyggst hann í fyrsta skipti í sjö ár rifja upp kynni sín af þessum gömlu góðu sönglögum og flytja rúmlega klukkustundarlanga dagskrá, sneisafulla af lögum eftir höfunda eins og Sigfús Halldórsson, Jón Nordal, Pál Ísólfsson, Sigvalda Kaldalóns og fleiri við ljóð eftir Tómas Guðmundsson, Davíð Stefánsson, Halldór Laxness og Jónas Hallgrímsson ásamt fleiri ljóðsnillingum Íslandssögunnar.
Með einungis gítarinn og Ukuleleið með í för er það nokkuð ljóst að tónleikarnir verða í senn einfaldir og hlýir. Þeir sem þekkja til flutnings Svavars Knúts á hinum sígildu íslensku sönglögum vita vel hvaða fjársjóðskistu hér er verið að opna og mega hugsa sér gott til glóðarinnar.
Miðaverð er kr. 3.000 en 2.000 fyrir lífeyrisþega og námsmenn. Frítt er fyrir börn í fylgd með fullorðnum.
Miðasala er á Tix.is