Hleð Viðburðir

Erla Axels opnar sýningu á nýjum verkum unnin í blandaða tækni, laugardaginn 14. október kl. 14, í Hannesarholti.

Um sýninguna segir Erla „í fjarlægð sé ég ofursmá hús í birtu borgarmarkanna og þegar ég lít mér nær sé ég mosann, grágrýtissprungur og breytileg jarðlög í klettum.“

Hún kýs að nefna sýninguna Vangaveltur, sem vísan í minningarbrot frá bernsku.

Erla stundaði nám í Myndlistaskólanum í Reykjavík og síðar í Skidmore, Saratoga Springs, N.Y. Hún hefur dvalið í Kjarvalsstofu í París og sýnt verk sín bæði hér heima og erlendis.

Erla stofnaði Art-Hún vinnustofur og sýningarsal ásamt fjórum öðrum listakonum sem var rekið í tólf ár.

Hún fæst við olíuverk á striga og verk unnin með blandaðri tækni á „gesso“ borinn pappír. Við vinnslu verkanna leyfir hún  sér þá að fara út fyrir þægindarammann, ímyndunaraflið ræður för þar til verkið hefur öðlast sjálfstætt líf.

Vinnustofa/sýningarsalur  Erlu er í Listaseli við Selvatn en þar hefur hún að mestu leyti sýnt sín verk síðastliðin tíu ár, en er nú komin í  heimsókn í Hannesarholt. Kór frá Margréti Pálmadóttur tekur nokkur lög við opnunina

Sýningin er opin alla daga vikunnar frá kl 11:30 – 17:00 og til kl 22:00 á fimmtudögum og stendur í fjórar vikur.