Þerriblaðsvísur VIII eftir Hannes Hafstein

Hannes Hafstein orti a.m.k. sextán vísur í kringum aldamótin 1900 sem kallaðar eru Þerriblaðsvísur og fjalla allar um “pennann, blekið og þerriblaðið”. Þær eru í raun stæling á skáldskaparstíl annarra. Hér yrkir Hannes í anda Gísla Brynjúlfssonar.

VIII
Þerripappír, satt eg segi,
sýgur, frá ég, ár og síð.
Meir þó bergði Boðnar legi
Bragi gamli á fornri tíð.

Skáldið ástar, satt eg segi,
sem að enginn jafnast við,
endurrisið á þeim degi,
er menn skildu Sónar klið.

Sjá einnig:

Þerriblaðsvísur I
Þerriblaðsvísur II
Þerriblaðsvísur III
Þerriblaðsvísur IV
Þerriblaðsvísur V
Þerriblaðsvísur VI
Þerriblaðsvísur VII