Einar_Mar_Jonsson_rithöfundurMánudaginn 15. apríl kl. 20 stendur Hannesarholt, menningarhús fyrir kvöldstund um Örlagaborgina með höfundinum Einari Má Jónssyni. Hilmar Örn Agnarsson tónlistarmaður leikur á píanó í bland við upplestur Einars Más og spjall um efni bókarinnar. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Örlagaborgin, Brotabrot úr afrekasögu frjálshyggjunnar, kom út á síðasta ári, hún vakti verðskuldaða athygli og hlaut m.a. tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðibóka og bóka almenns efnis. Um er að ræða fyrra bindi af tveimur. Segja má að tilefni bókarinnar séu atburðir síðustu ára; aðdragandi hrunsins, aðgerðir eða aðgerðaleysi einstakra manna og rætur þessa alls: frjálshyggjan og kennisetningar hennar. Í Örlagaborginni fer Einar Már yfir kennisetningarnar, skoðar hvernig þær urðu til, hvaða hlutverki þær gegndu og hvernig þær bárust áfram.

Í Hannesarholti mun Einar Már kynna bókina, lesa valda kafla og svara spurningum gesta. Þá mun Hilmar Örn Agnarsson tónlistarmaður leika á píanó. Þá verður hægt að kaupa veitingar á kaffihúsi Hannesarholts.

Einar Már er sagnfræðingur og doktor í miðaldafræðum. Hann kenndi um árabil við Sorbonne-háskóla í París þar sem hann er búsettur. Bók hans, Bréf til Maríu, vakti gífurlega athygli og umræður þegar hún kom út árið 2007.