Hannesarholt mun bjóða upp á gönguferðir fyrir erlenda ferðamenn í sumar. Veitt verður innsýn í fyrstu ár borgarmenningar á Íslandi í upphafi 19. aldar. Gönguferðirnar verða á ensku.

Gönguferðirnar hefjast í Hannesarholti að Grundarstíg 10 þar sem gestum er boðið að fræðast um Hannes Hafstein, fyrsta íslenska ráðherrann, og húsið sem hann reisti árið 1915. Sýnd verður stutt heimildamynd um Hannes og þá miklu breytingatíma í íslensku samfélagi sem hann lifði á. Þá verður gengið af stað um elsta hluta borgarinnar og sagt frá áhugaverðum sögulegum stöðum og viðburðum úr menningar- og bókmenntasögu Íslands.

Hægt er að bóka með því að hringja í 5111904 eða senda töluvpóst á hannesarholt@hannesarholt.is og 4.000 kr.