Skúli Sverrisson og Óskar Guðjónsson hafa verið á stífri yfirreið og haldið  tónleika vítt og breitt um landið. Þriðjudagskvöldið 1. október er komið að Reykvíkingum að njóta tónlistar þessara snillinga og þeir eru einmitt haldnir hér í Hannesarholti. Þeir félagar hafa starfað saman i 15 ár og gefið út tvær plötur, Eftir þögn og The box tree sem báðar unnu til íslensku tónlistaverðlaunanna sem plata ársins í flokki jasstónlistar.
Skúli hefur ad mestu leyti starfað í Bandaríkjunum med mörgum þekktum listamönnum eins og Allan Holdsworth, Laurie Anderson, David Sylvian og Blonde Redhead.
Óskar er einn af fremstu jasstónlistamönnum landsins og tónlist hans hefur vakið athygli um víðan heim. Hann hefur leikið med fjölda hljómsveita en helst má nefna ADHD og Mezzoforte.
Tónlist þeirra Skúla og Óskars er lagræn og hljómfögur þar sem einstök nálgun hljóðfæraleiks þeirra nýtur sín sem allra best.

Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og miðar verða seldir við innganginn (gengið inn frá Skálholtsstíg). Miðaverð er 2.000 kr.

t_1379867999_image