Fjöruverðlaunin bjóða til Bókahátíðar í Hannesarholti, kl. 13-15 laugardaginn 12. desember.

Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, eru veitt árlega í þremur flokkum: flokki fagurbókmennta, flokki fræðibóka og rita almenns eðlis, og flokki barna- og unglingabókmennta.

Notaleg bókastemmning og svigrúm fyrir spurningar og spjall.

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir, aðgangur ókeypis.

Veitingahúsið í Hannesarholti er opið frá 11-17.