TÓTA – Þórunn Elísabet fangar augnablikið á ljósmynd á sinn einstaka hátt. Ljósmyndasýning hennar í veitingastofum Hannesarholts mun standa til 14.október. Þórunn hefur starfað innan leikhússins í þrjátíu ár og getið sér gott orð fyrir búningahönnun og sviðsmyndir. Þórunni Elísabetu voru veitt Grímuverðlaunin 2003 og 2007 fyrir búninga. Meðfram fjölbreyttu og krefjandi starfi í leikhúsunum hefur Þórunn Elísabet unnið að myndlist og hefur haldið einkasýningar ásamt því að taka þátt í ýmsum samsýningum. Þetta er fyrsta ljósmyndasýning hennar og hefur vakið verðskuldaða athygli.