Guðný Guðmundsdóttir, fiðluleikari, heldur upp á sjötugsafmælið sitt með sinni eigin tónleikaröð árið 2018 þar sem hún mun flytja öll verk Mozarts fyrir píanó og fiðlu. Tónleikarnir verða tíu talsins og munu hinir ýmsu píanóleikarar ganga til liðs við Guðnýju.

Tónleikarnir eru 10 talsins og verða haldnir á síðasta sunnudegi hvers mánaðar í Hannesarholti og hefjast þeir kl. 12:15. Miðaverð er 3000,-

Í afgreiðslu Hannesarholts er hægt að kaupa 5 miða afsláttarkort á einungis 12500,-

og eru dagsetningar valdar í afgreiðslu Hannesarholts við fyrstu komu.

Hægt er að kaupa afsláttarkortin á midi.is og í afgreiðslu Hannesarholts