Frá síðasta sumri höfum við haft opið öll fimmtudagskvöld til kl.22. Happy hour frá 17-19, lifandi tónlist frá 18.30-20 með Pálmar Ólason á píanóninu í veitingastofunum þar sem fram er borinn einfaldur kvöldverður. Við tökum okkur frí fyrsta fimmtudag ársins, þann 4.janúar. Fyrsta fimmtudagskvöldið sem við höfum opið til kl.22 er 11.janúar. Það kvöld verður Kristín Helga Gunnarsdóttir með okkur frá kl.20 og ræðir um nýju bók sína um mál málanna, flóttabörn.