Hannesarholt hefur staðið fyrir FARFUGLATÓNLEIKUM í jólaleyfinu undanfarin ár, sem vakið hefur mikla ánægju jafnt hjá flytjendum og njótendum. Eins og reynslan hefur sýnt þá styrkir það ungt tónlistarfólk að halda tónleika á heimaslóðum og styrkir tengslin við samfélagið sem ól þau af sér. Þá er ekki síður dýrmætt fyrir þá sem heima sitja að fá að fylgjast með þroskagöngu unga listafólksins.

Hljóðberg, tónleikasalur Hannesarholts, hefur afburða hljómburð og státar af Steinway flygli 211, sem er á meðal þeirra bestu í landinu. Andrúmsloftið í Hljóðbergi er heimilislegt, salurinn heldur vel utanum gesti og þar skapast mikil nánd sem býður uppá samtal milli flytjenda og gesta.

Verkefnið Tónleikar farfugla fellur vel að markmiðum Hannesarholts, en meðal þeirra er að hlúa að og skapa rými fyrir uppbyggjandi mannlíf og menningarstarfssemi og rækta samband kynslóðanna.

Áhugasamt ungt tónlistarfólk í námi erlendis er hvatt til að senda umsókn á netfangið hannesarholt@hannesarholt.is merkt Tónleikar farfugla. Umsóknarfrestur er til 25.nóvember.