,,Húrra fyrir okkur konum! Og dálítið húrra fyrir Hannesi Hafstein” sagði Bríet Bjarnhéðinsdóttir í kjölfar áfangasigurs fyrir auknum réttindum kvenna. Bríet gaf Hannesi rauðar rósir með hvítum og gláum silkiböndum í þakklætisskyni fyrir liðveisluna. Þess vegna höldum við í Hannesarholti sérstaklega uppá rauðar rósir – og óskum öllum konum og körlum til hamingju með daginn sem færði kosningaréttinn árið 1915.