Verið velkomin í Hannesarholt 17.júní 2020 kl. 11.30 – 17, eldhúsið opið og sumarseðillinn í boði, ásamt heimagerðu bakkelsi. Hátíðartónar kl.16, dúettar og einsöngslög fyrir sópran og mezzosópran fluttir af engum öðrum en Ingibjörgu Guðjónsdóttur og Nathalíu Druzin Halldórsdóttur við undirleik Ástríðar Öldu píanóleikara.. Myndlistarsýning Hörpu Másdóttur Í hring í veitingastofum.