ÚtgáfuÆvintýri í Hannesarholti

Vigdís Grímsdóttir kemur skemmtilega á óvart. Í tilefni af stórafmæli hennar í sumar verður bæði hátíð og myndlistarsýning í Hannesarholti í nóvember. Til að fagna þeim tímamótum verður haldin samverustund henni til heiðurs þann 4. nóvember í Hannesarholti, þar sem m.a. verður lesið úr verkum hennar.

Sama dag kemur út skáldsaga Vigdísar, Ævintýrið, auk þess sem opnuð verður málverkasýning með verkum hennar. Sýningin stendur til 15.nóvember og er opin alla jafna á opnunartíma Hannesarholts, alla daga nema sunnudaga og mánudaga kl.11:30-16:00.

Dagskrá 4.nóvember kl.13

Ásta Björk Sveinbjörnsdóttir

Gerður Kristný

Jórunn Sigurðardóttir

Kristín Eiríksdóttir

Guðrún Steinþórsdóttir

Steinunn Gróa Sigurðardóttir

Kristín Ómarsdóttir

Hanna María Karlsdóttir og Ragnheiður Steindórsdóttir

Hlé

Olga Guðrún Árnadóttir

Bergljót Soffía Kristjánsdóttir

Hanna Óladóttir

Sigríður Halldórsdóttir

Hólmfríður Helga Sigurðardóttir

Kristrún Heimisdóttir

Sigurbjörg Þrastardóttir

Þóra Sigríður Ingólfsdóttir