Kjartan Ari Pétursson

SPÍRALAR INNÍ SPÍRALA

Kjartan Ari Pétursson segir frá verkunum á myndlistarsýningu sinni SPÍRALAR INNÍ SPÍRALA í Hannesarholti þriðjudaginn 20.febrúar kl.13-14.

Kjartan er fæddur í Reykjavík 1972. Hann fæst við teikninginguna, með penna. Verk hans eru tvívíð, en innan myndarammans rúmast hyldýpi sem skapast við tímakrefjandi hreyfingar handar og auga við teikninguna, „sem hefst á einum punkti á blaði og hringgerist, gárast eða bylgjugerist í þær áttir sem hugurinn beinir þeim í, í ákveðnu flæðis-ástandi, utan tíma og út fyrir myndarammann.“ Kannski má líta á verkin sem mynd af undirvitund?

Sýningin er sölusýning og stendur til 27.febrúar.