Þerriblaðsvísur VI eftir Hannes Hafstein
Hannes Hafstein orti a.m.k. sextán vísur í kringum aldamótin 1900 sem kallaðar eru Þerriblaðsvísur og fjalla allar um „pennann, blekið og þerriblaðið“. Þær eru í raun stæling á skáldskaparstíl annarra. Hér yrkir Hannes í anda Benedikts Gröndals.
Á himinskýjum skáldsins andi flaug
sem skrýtinn bláfugl eða apótek,
og himinljósa leiftur í sig saug
líkt eins og þerripappír drekkur blek.
Sjá einnig:
Þerriblaðsvísur I
Þerriblaðsvísur II
Þerriblaðsvísur III
Þerriblaðsvísur IV
Þerriblaðsvísur V