Félag íslenskra fræða
06/04/2016 @ 20:00
Höskuldur Þráinsson: Hvað getum við lært um íslensku af Vestur-Íslendingum?
Eitt af því sem málfræðingar velta fyrir sér er það hvaða áhrif menningarlegir og félagslegir þættir hafa á þróun tungumála. Félagsleg og menningarleg staða íslensku í Vesturheimi hefur auðvitað verið allt önnur en staða íslensku hér heima. Þess vegna er áhugavert að bera þróun vesturíslensku saman við þróun heimaíslensku. Ef þróunin er mjög ólík má ætla að þar hafi menningarlegir og félagslegir þættir haft áhrif. Ef hún er mjög lík bendir það til þess að aðrir þættir hafi skipt máli, t.d. eitthvað í málkerfinu sjálfu. Í erindinu verður sagt frá nokkrum niðurstöðum úr rannsóknaverkefninu „Mál, málbreytingar og menningarleg sjálfsmynd“ sem Höskuldur Þráinsson og Birna Arnbjörnsdóttir hafa stýrt undanfarin misseri og tekin dæmi af breytingum á vesturíslensku og heimaíslensku sem hafa í sumum tilvikum verið samstíga en í öðrum tilvikum ekki.
Höskuldur er doktor í málvísindum frá Harvardháskóla (1979) og prófessor í íslensku nútímamáli við Háskóla Íslands frá 1980.
Allir eru velkomnir á rannsóknarkvöld FÍF, frítt inn.