Hleð Viðburðir

Einar Kárason, Sigurður Pálsson, Sjón og Þórarinn Eldjárn hafa um langt árabil hist á fimmtudögum og borið saman bækur sínar. Nú taka þeir stefnuna í Hannesarholt við Grundarstíg, bera nýjar bækur sínar saman þangað og efna til upplestrarkvölds í fjórskiptum takti næstkomandi fimmtudagskvöld, 10. nóvember, kl. 20-22.

Fyrir þá sem vilja taka kvöldið snemma, má njóta fiskisúpu í veitingastofum Hannesarholts frá kl.18.30 fyrir kr.2450. Borðapantanir í síma 511-1904.

 

Upplýsingar

Dagsetn:
10/11/2016
Tími:
20:00
Viðburður Category: