Bygging núverandi húss – eldri hús

Húsið sem nú stendur við Grundarstíg 12 er byggt árið 1957 skv. fasteignaskrá.

Í grein Guðjóns Friðrikssonar sagnfræðings, Úr sögu Grundarstígs:  Frá Kafteins-Guddu til Thorsbræðra frá 1990 kemur fram að “þarna var áður lítið verslunarhús sem dansk-þýski gyðingurinn Obenhaupt reisti árið 1916 en íbúðarhús hans, sem nú hýsir Borgarbókasafnið er rétt fyrir neðan.” Það er a.m.k. ljóst að það var ýmislegt að gerast á Grundarstíg 12 fyrir árið 1957 eins og sjá má hér fyrir neðan.

Starfsemi og verslanir í húsinu í gegnum tíðina

Upplýsingarnar hér á eftir eru engan veginn tæmandi en settar fram eftir bestu vitund. Allar leiðréttingar og viðbætur eru vel þegnar.

  • 1918: Óskað eftir stúlku í vist á Grundarstíg 12 (augl.)
  • 1921: Verslunin Grund Grundarstíg 12 selur í nokkra daga steinbeitsrikling afar ódýran… (augl.) Verslunin auglýsir næstu árin, síðast 1924 með þessu nafni.
  • 1923: Fæði í boði á Grundarstíg 12 (augl.) og einnig næstu árin, síðast auglýst 1927.
  • 1924: Ingibjörg Guðmundsdóttir  kennir íslensku, dönsku, ensku og reikning (augl.) einnig næstu árin a.m.k. til 1931.
  • 1924: Ódýrar kvensumarkápur fást á Grundarstíg 12, búðinni (augl.) – “Búðin” auglýsir a.m.k. til 1930.
  • 1928: Sólarljós-Steinolía fæst á Grundarstíg 12, hjá kaupk. Steinunni Pétursdóttur (augl.)
  • 1936: Þorsteinsbúð auglýsir bökunarefni, krydd og hreinlætisvörur (augl.). Þorsteinsbúð auglýsir a.m.k. til 1943.
  • 1943: Saumum dömukjóla og kápur. Saumastofan Grundarstíg 12 (augl.) – Auglýsir einnig 1945.
  • 1943 (nóv): Verslunin Ingólfur farin að auglýsa á Grundarstíg 12 (augl.) – Einnig 1944.1945: Æðardúnn til sölu hjá versluninni Grundarstíg 12 (augl.).
  • 1946: Jólakveðja frá  Versl. Gunnars Gíslasonar, Grundarstíg 12 (augl.) – Jólakveðjur/auglýsingar frá versluninni sjást allt til 1963.
  • 1947: María Hallgrímsdóttir, Grundarstíg 12 gegnir heimilslæknisstörfum fyrir Bergsveinn Ólafsson um tíma (augl.)
  • 1960: Stúlka óskast á Prjónastofa Önnu Þórðardóttur, Grundarstíg 12 (augl.)
  • 1964: Til sölu er götuhæð, ca. 70 ferm. ásamt kjallara ca. 40 ferm. í nýbyggingu á Grundarstíg 12. Plássinu má skipta í tvennt. í kjallara er góð loftræsting (augl.)
  • 1965: Á stéttinni gegnt bókasafninu Grundarstíg 12, er til sölu: 41 element ofnar 4 c 70 cm Rafha eldavél. W.C. kassi (hátt skolandi) – (augl.)
  • 1966: Kosningaskrifstofa B-listans er að Grundarstíg 12 (augl.)
  • 1969: Reykið ókeypis. Sölubúðin Grundarstíg 12 (augl.)1972: Segulbandsviðgerðir
  • 1972: Á Grundarstíg 12 virðist hafa verið segulbandviðgerðarstofa sem nú auglýsir flutning (augl.)
  • 1973: Atvinnuhúsnæði til sölu (augl.)
  • 1977: Albert Guðmundsson, heildverzlun Grundarstíg 12 (augl.) – Minnst er á heildverslunina á Grundarstígnum allt til 1996 í dagblöðum.
  • 1978: Svo virðist sem skrifstofa Verslunarskóla Íslands hafi verið að Grundarstíg 12 um tíma skv. þessari tilkynningu (tilk.)
  • 1983: Söluturninn Grundarstíg 12 (augl.) – auglýsir allt til 1998
  • 1993: Jórunn Brynjólfsdóttir rak verslun að Grundarstíg 12, ekki kemur fram hvaða ár (grein)
  • 2006: Gallerí Dvergur: 18.00 Hanna Christel Sigurkarlsdóttir opnar sýningu sína ,,INNAR” í sýningarrýminu Gallerí Dvergur, sem er til húsa að Grundarstíg 12 (augl.)


Fróðleiksmolar/fréttir

  • 1941: M.S. Hekla skotin í kaf og 14 Íslendingar farast, þ.á.m. Haraldur Sveinsson, háseti, Grundarstíg 12 (frétt og frh. frétt).
  • 1969: Brotist inn á Grundarstíg 12 (frétt).
  • 1983: Innbrot í heildverslun Alberts Guðmundssonar (frétt).
  • 2001: Söluturninn að Grundarstíg 12 rændur (frétt).