Bygging hússins

Grundarstígur 23 er eitt yngsta húsið við götuna, byggt árið 1988 skv. fasteignaskrá. Það á sér því ekki sögu sem hægt er að lesa úr dagblöðum fyrri tíma eins og flest önnur hús við Grundarstíginn.