Bygging núverandi húss

Húsið að Grundarstíg 3 var byggt árið 1913 skv. fasteignaskrá og var fyrsti eigandi þess Jóhann Jóhannesson kaupmaður.

Fróðleiksmolar

Í húsinu bjuggu árið 1913 tveir af framsæknustu kennurum landsins, þeir Hallgrímur Jónsson og Steingrímur Arason (1).

Í janúar 1923 kviknaði í húsinu og skemmdist veggfóður í herbergi og ein hurð (2).


Verslun og önnur starfssemi í húsinu í gegnum tíðina

Upplýsingarnar hér á eftir eru engan veginn tæmandi en settar fram eftir bestu vitund. Allar leiðréttingar og viðbætur eru vel þegnar.

Það virðist hafa verið mest um að vera í húsinu fram undir 1930 – eftir það er ekki að sjá neinar auglýsingar í dagblöðum sem varða starfsemi.

  • 1913: Guðmundur Pjetursson massagelæknír hefur aðstöðu á Grundarstíg 3 (augl.)
  • 1913: Glæný og stór egg fást dagl. við Grundarstíg 3 (augl.)
  • 1913: Steingrímur Arason auglýsir barnaskóla sinn fyrir börn innan 10 ára  (augl.)
  • 1917: P. Leifsson sem titlar sig ljósmyndara bjó eða hafði aðstöðu á Grundarstíg 3 (augl.)
  • 1922: Tilsögn fyrir byrjendur í islensku, reikningi, dönsku o.fl. Uppl. Grundarstíg 3 (augl.)
  • 1926: Benedikt Fr. Magnússon frá Spákonufelli býr á Grundarstíg 3 og rekur erindi í höfuðstaðnum fyrir menn úti um land gegn sanngjarnri borgun (augl.)
  • 1927: Jón Pálsson kennir á orgel (augl.)
  • 1927: Eyjablaðið málgagn alþýðu í Vestmanneyjum fæst hjá Meyvant Ó. Hallgrímssyni á Grundarstíg 3 (augl.)


Gamlar fréttir/auglýsingar af Grundarstíg 3

  • 1913: Ágætar varphænur til sölu, spánskar, ítalskar og íslenskar, Grundarstíg 3 (augl.)
  • 1917: Föt handa fátækum – Steinunn Bjartmarsdóttir er búsett á Grundarstíg 3 og meðlimur í yngri deild Hvítabandsins. Hún auglýsir ásamt annarri konu móttöku fata fyrir þá sem bágast eiga á þessum erfiðu tímum (augl.frh. augl.)
  • 1919: Heilar 20 krónur fundust við Grundarstíg (augl.)
  • 1919: Spunakona fáanleg (augl.)
  • 1926: Auglýsing um að Þingkosningavísurnar séu komnar út (augl.)

Heimildir:
1. Guðjón Friðriksson. (1990, 13. október).  Úr sögu Grundarstígs:  Á slóðum Grundarbæjanna í Reykjavík.  Lesbók Morgunblaðsins. Sótt 19. júlí 2010 af http://www.timarit.is
2. Páll V. Bjarnason. (2004). Húsakönnun:  Bergstaðastræti – Bjargarstígur – Grundarstígur – Óðinsgata – Spítalastígur. Reykjavík:  Árbæjarsafn