Bygging núverandi húss
Grundarstígur 5a (fyrir miðju á myndinni) er byggt árið 1883 skv. húsakönnun Minjasafns Reykjavíkur og þar með elsta húsið við Grundarstíginn (1). Skv. fasteignaskrá er það byggt 1923 en það mun vera rangt.
![g5a 1](https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/07/g5a-1.jpg)
Fyrsti eigandi hússins var Sigurður Hansson múrari eða steinsmiður eins og hann var nefndur, en hann vann m.a. um tíma að byggingu Hegningarhússins við Skólavörðustíg (sjá grein) . Húsið var upphaflega kallað Grundarhús sbr. Guðjón Friðriksson. Ekki er vitað hver hannaði húsið.
Áður en núverandi hús kom til stóð bærinn Grund á lóðinni en árið 1909 náði hún frá Spítalastíg að Bjargarstíg (2).
Í manntalinu árið 1910 kemur fram að húsið er í eigu Ólafs Theodórssonar frá Borðeyri (sbr. Guðjón Friðriksson). Hann bjó þó sjálfur ekki í húsinu, heldur Jón Hallsson daglaunamaður og kona hans Álfheiður Stefánsdóttir.
Skv. húsakönnun Minjasafns Reykjavíkur er húsið úr bindingsverki, sem fyllt er í með múrsteini og hraungrjóti með járnþaki. Síðar var húsið klætt utan með borðum og enn síðar járnklætt.
Húsið hefur tekið breytingum í gegnum tíðina en heldur upprunalegum byggingarstíl (2).
Starfsemi í húsinu í gegnum tíðina
Upplýsingarnar hér á eftir eru engan veginn tæmandi en settar fram eftir bestu vitund. Allar leiðréttingar og viðbætur eru vel þegnar.
Ólíkt ýmsum öðrum húsum við Grundarstíginn, ber lítið á auglýsingum varðandi Grundarstíg 5A í dagblöðum fyrri ára. Aðeins ein auglýsing fannst sem fallið gat undir starfsemi:
- 1927: Sigríður Teitsdóttir tekur að sér þvotta og strauningar (augl.)
Heimildir:
1. Guðjón Friðriksson. (1990, 13. október). Úr sögu Grundarstígs: Á slóðum Grundarbæjanna í Reykjavík. Lesbók Morgunblaðsins. Sótt 19. júlí 2010 af http://www.timarit.is/view_page_init.jsp?issId=242470&pageId=3308506
2. Páll V. Bjarnason. (2004). Húsakönnun: Bergstaðastræti – Bjargarstígur – Grundarstígur – Óðinsgata – Spítalastígur. Reykjavík: Árbæjarsafn
var _gaq = _gaq || []; _gaq.push(['_setAccount', 'UA-38855006-1']); _gaq.push(['_trackPageview']);
(function() { var ga = document.createElement('script'); ga.type = 'text/javascript'; ga.async = true; ga.src = ('https:' == document.location.protocol ? 'https://ssl' : 'http://www') + '.google-analytics.com/ga.js'; var s = document.getElementsByTagName('script')[0]; s.parentNode.insertBefore(ga, s); })();