Bókmenntaspjall

Hljóðberg

Þórunn Sigurðardóttir bókmenntafræðingur segir frá nýútkominni bók sinni Heiður og huggun. Erfiljóð, harmljóð og huggunarkvæði á 17. öld.

kr.1000

Móttaka til heiðurs Pétri Knútssyni

Í tilefni af útgáfu greinasafnsins An Intimacy of Words/Innileiki orðanna. Essays in Honour of Pétur Knútsson/Festschrift til heiðurs Pétri Knútssyni býður Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands til móttöku miðvikudaginn 18. nóvember kl. 16-18

Heimspekispjall – Merking og tilgangur eftir Pál Skúlason

Hljóðberg

Björn Þorsteinsson, Salvör Nordal, Henry Alexander og Skúli Skúlason munu flytja stuttar hugleiðingar um þá heilsteyptu kenningu um veruleikann sem Páll setur fram í verkinu um stöðu okkar í heiminum og samspil merkingar og tilgangs.

Sungið saman

Hljóðberg

Kristín Valsdóttir og Ragnheiður Haraldsdóttir nikkusystur og tónmenntakennarar stjórna almennum samsöng.

kr.1000

Af landi

Hannesarholt veitingastofur 1.hæð

Þóra Björk Schram sýnir málverk unnin með akrýl & blandaðri tækni í veitingastofum Hannesarholts.

Skáldaskraf Félags íslenskra fræða

Hljóðberg

Guðmundur Andri Thorsson og Halldór Guðmundsson munu spjalla um nýútkomnar bækur sínar, ævisöguleg skrif og hvaðeina sem kann að bera á góma.