Week of Viðburðir
Leiklistarspjall – Sveinn Einarsson
Leiklistarspjall – Sveinn Einarsson
Kvöldstund með Sveini Einarssyni leikstjóra og leikhúsfræðingi, sem nýlega hefur sent frá sér bókina Íslensk leiklist III, sem fjallar m.a.um stofnun Þjóðleikhússins. Léttur kvöldverður á sanngjörnu verði á undan í veitingastofunum. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesaraholt.is
Ljóða-og tokkötukvöld Steinunnar og Þorsteins
Ljóða-og tokkötukvöld Steinunnar og Þorsteins
Kvöldstund með Steinunni Sigurðardóttur og Þorsteini Haukssyni, þar sem ljóð Steinunnar og tónsmíðar Þorsteins verða í forgrunni. Tinna Þorsteinsdóttir leikur tvær tokkötur fyrir píanó eftir Þorstein og Arnaldur Arnarson flytur tokkötu fyrir gítar eftir hann. Kjúklingasúpa með heimabökuðu brauði á 2450 frá kl.18.30, borðapantanir í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is.
Stína Ágústs og orgeltríó Leo Lindberg
Stína Ágústs og orgeltríó Leo Lindberg
Stína Ágústsdóttir söngkona og sænski píanóleikarinn Leo Lindberg flytja nokkur frumsamin lög ásamt blöndu af blúsuðum standördum og fönkfylltu poppi. Meðleikarar þeirra eru ekki af verri endanum en Max Schultz, sænska gítarhetjan, og Chris Montgomery, einn eftirsóttasti jazztrommari Svíþjóðar, verða með þeim og má því búast við einstaklega skemmtilegum tónleikum. Ofnbakaður lax með rjómaosti, hnetum, karftöflumús, og fersku salati á 3.290 í veitingastofunum frá kl.18.30, borðapantanir í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is