Hleð Viðburðir

 

Svo virðist sem hugðarefni margra kvenheimspekinga séu og hafi verið á skjön við ýmis ráðandi stef í kenningum karl-heimspekinga. Í framsögu sinni veltir Sigríður Þorgeirsdóttir upp þeirri spurningu hvort saga vestrænnar heimspeki sé á einhvern hátt öðruvísi þegar hún er sögð í ljósi kvennanna sem lagt hafa stund á heimspeki í gegnum tíðina. Hugsuðu þær á einhvern hátt öðruvísi?
Út er komin bók eftir Sigríði sem hefur að geyma stuttar lýsingar á mörgum helstu  kven-heimspekingum veraldarsögunnar allt frá fornöld til samtímans. Sigríður er prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands.

Allir velkomnir.

Upplýsingar

Dagsetn:
09/12/2013
Tími:
08:00 - 22:00
Verð:
Free

Staðsetning

Hljóðberg