Hleð Viðburðir

Í kvöld 12. febrúar kl. 20:00 í Hljóðbergi í Hannesarholti, Grundarstíg 10 gengið inn frá Skálholtsstíg.

Á fyrsta rannsóknarkvöldi FÍF að vori mun Guðbjörn Sigurmundsson MA í íslenskum bókmenntum og íslenskukennari við Menntaskólann í Kópavogi flytja fyrirlesturinn: „Öll þessi ár kona góð, öll þessi ár.“

Erindið fjallar um skáldskap Sigfúsar Daðasonar á árunum 1945-1959 sem kalla má æskuskeið hans, það fyrsta af þremur. Litið verður til erlendra áhrifavalda á ljóð Sigfúsar og hvernig þessi áhrif birtast í fyrstu tveimur ljóðabókum skáldsins. Þá verður einnig fjallað um atómskáldin og stöðu Sigfúsar innan hópsins þar sem hann tók að sér forystuhlutverk vegna afburða þekkingar á ljóðlist samtímans. Erindið byggir á MA-ritgerð Guðbjörns í íslenskum bókmenntum frá því í september 2013: Sigfús Daðason og umheimurinn.

Allir velkomnir.

Upplýsingar

Dagsetn:
12/02/2014
Tími:
08:00 - 17:00