Hleð Viðburðir

Harpa Þorvalds stýrir Syngjum saman í Hannesarholti laugardaginn 6.apríl kl.14.

Harpa er verkefnastjóri list- og menningartengdra verkefna á Grunnskólaskrifstofu Skóla og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og stýrir þar á meðal verkefninu Syngjandi skóli. Áður starfaði hún sem tónmenntakennari og kórstjóri við Laugarnesskóla í Reykjavík. Auk þess hefur Harpa stjórnað vikulegum söngstundum á Hrafnistu frá árinu 2018, haldið utan um viðburðinn Syngjum saman í Hannesarholti á árum áður og er sjálfstætt starfandi tónlistarkona og meðlimur í hljómsveitinni Brek.

Syngjum saman í Hannesarholti veturinn 2023-2024 er tileinkað Marinellu Ragnheiði Haraldsdóttur, sem var fædd 1933 og hefði því orðið níræð 14.september 2023. Hannesarholt er til vegna hennar og hún mætti á alla Syngjum saman viðburði með dóttur sinni þar til að heimsfaraldurinn truflaði taktinn. Um leið og við minnumst hennar og heiðrum viljum við taka hana okkur til fyrirmyndar. Söngurinn fylgdi henni ævina út, en hún lést 11.júlí síðastliðinn 2023. Frítt er inná Syngjum saman í Hannesarholti í hennar minningu.

Textar á tjaldi svo allir geta sungið með. Allar kynslóðir velkomnar.