Hleð Viðburðir

Íslendingar hafa löngum ræktað sönghefðina á mannamótum og í rútubílum. Hannesarholt vill leggja sitt af mörkum til að hlúa að sönghefðinni og bjóða uppá samsöng fyrir alla, unga sem aldna, Íslendinga sem aðflutta, undir stjórn kunnáttufólks.  Næsta söngstund verður haldin sunnudaginn 8.desember kl.16, og mun Þórunn Björnsdóttir, kórstjóri leiða sönginn í um klukkustund, Ástvaldur Traustason spilar undir á píanó  og Jón Rafnsson á bassa. Textar munu birtast á skjá. Þar sem jólin eru á næsta leiti verða jólalögin að sjálfsögðu í aðalhlutverki.

Aðgangseyrir er  kr.1000. Hægt er að tryggja sér miða á: www.miði.s

http://midi.is/tonleikar/1/7997/

Borðstofan verður opin á fyrstu hæð hússins, og hægt verður að fá sér kaffi og meðlæti á undan eða eftir.

Hér má sjá myndbönd frá fyrri söngstundum í Hannesarholti:

http://youtu.be/Dmzbs28RWQ4

http://youtu.be/hBBR155TAFQ

 

 

Upplýsingar

Dagsetn:
08/12/2013
Tími:
16:00 - 17:00
Verð:
ISK1000
Viðburður Category:
Vefsíða:
http://midi.is/tonleikar/1/7997/

Skipuleggjandi

Hannesarholt

Staðsetning

Hljóðberg