Hleð Viðburðir

Tilefni málþingsins eru tvær bækur sem nýlega hafa komið út eftir Pál Skúlason fyrrverandi rektor Háskóla Íslands, Ríkið og rökvísi stjórnmála (2013) og Hugsunin stjórnar heiminum (2014). Sameiginlegt stef bókanna er að færa rök fyrir því hvers vegna við þurfum á heimspeki að halda. Hún skerpi þá sýn okkar á heiminn sem ræður athöfnum okkar og sé nauðsynleg til að svara spurningum um hvernig mynda á heilsteypt og gott samfélag.

Á málþinginu mun Páll flytja ávarp um eðli og hlutverk heimspekinnar. Að því loknu munu tveir fræðimenn við Háskóla Íslands, þau Jón Karl Helgason prófessor og Hulda Þórisdóttir lektor, fjalla um þetta sameiginlega stef bókanna og velta upp áhugaverðum spurningum í ljósi röksemda þeirra. Mun Hulda einkum beina athygli sinni að rökvísi stjórnmálanna en Jón Karl veltir fyrir sér sambandi hugsunar og heims.