Við lítum með stolti yfir árið sem er að baki og horfum bjartsýn fram á veginn til 2025. Af þeim 106 viðburðum sem við héldum 2024 voru 54 ókeypis! Auk viðburðanna tókum við að sjálfsögðu á móti innlendum gestum auk þúsunda ferðamanna í samvinnu við tvær ferðaskrifstofur. Hannesarholt er menningarhús fyrir alla, með stóran faðm, og enginn þarf að láta á móti sér að njóta þess sem þar er boðið uppá, því aðeins brot af því sem Hannesarholt býður uppá væntir þess að fólk greiði fyrir. Allir eru velkomnir á opnunartíma Hannesarholts til að skoða húsið, setjast niður, lesa í bók, leika á loftinu eða þiggja fræðslu um söguna og Hannes Hafstein án endurgjalds. Við horfum með tilhlökkun til 8.febrúar, en þá fögnum við því að 12 ár eru liðin síðan Hannesarholt var formlega opnað. Verið æfinlega velkomin!