Myndlistarsýningin Enginn karlaklúbbur eftir Sísí Ingólfsdóttur frá 25.febrúar til 17.mars velti fyrir sér stsöðu konunnar og frelsi hennar til að taka sér pláss. Með fígúratívum teikningum leikur hún sér að hlutvervingu konunnar við hlið steríótýpu hins hvíta miðaldra karlmanns.

Enginn karlaklúbbur - Sísí Ingólfsdóttir

2023-02-25

Romain Collin dvaldi í gestaíbúð Hannesarholts í febrúar og hélt ferna tónleika fyrir gesti Hannesarholts, eina einleikstónleika og þrenna ásamt gestum. Að þessu sinni voru gestir hans Bergur Þórisson, GDRN og Viktor Orri Árnason. Romain hélt áþekka tónleikaröð fyrir tveimur árum, sem varð endaslepp vegna heimsfaraldurs og tónleikar felldir niður. Romain er einstaklega ljúfur og hæfileikaríkur tónlistarmaður og stafsfólk Hannesarholts hefur haft sérstaka ánægju af nærveru hans í húsinu. Við vonum að næstu árin færi okkur fleiri heimsóknir og tónleikaraðir frá Romain Collin.

Romain Collin aftur með tónleikaröð í Hannesarholti

2023-02-25

Meðal þess sem gladdi afmælisgesti á tíu ára afmæli Hannesarholts var að biðinni eftir tvímálabókinni Ólgublóð/Restless Blood var loks lokið og fólk gat fengið bókina í hendur. Ragnheiður Jónsdóttir stofnandi Hannesarholts hvatti til að ráðist skyldi í þetta verk, sem Ástráður Eysteinsson og Julian Meldon D'Arcy inntu af hendi með miklum ágætum. Þeir félagar lásu upp úr bókinni ljóð bæði á íslensku og ensku, og höfðu gestir hina mestu skemmtun af..

Tíu ára afmæli Hannesarholts

2023-02-08

Harpa Másdóttir gladdi gesti Hannesarholts með sýningu sinni AFTUR Í  HRING, sem var sjálfstætt framhald af síðustu sýningu Hörpu á hringlaga málverkum. Hún heldur áfram að endurhugsa hinn hringlaga flöt með því að byggja h ann upp, rífa niður, afmá og byggja upp á ný. Allt getur gerst í öruggu umhverfi hringformsins og hringnum er lokað.

Aftur í hring

2023-02-04

Myndlistarsýning Ingu Höskuldsdóttur á myndverkum sem hún vann úr afskurði og matarafgöngum sem var fyrsta sýning ársins 2023 hlaut verðskuldaða athygli. Hér má sjá Sóley Gestsdóttur taka viðtal við Ingu í Víðsjá. https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/kastljos/33550/9vuknq/matarmyndir-ingu-hoskuldsdottir? fbclid=IwAR0LnW9v_W9uIST3PgIbYtvBlv_ZwZcLJvQeX22jsjo8tu5OpvYj1np3HBM

Burtfloginn kjúklingur og teiknaðar kartöflur

2023-01-27

Hannesarholt óskar ykkur gleðilegra jóla

2022-12-24

100 ára ártíð Hannesar Hafstein - Hátíðardagskrá

2022-12-13

Soffía Gísladóttir er ein þeirra nemenda Myndlistarskólans í Reykjavík sem tóku þátt í gjöfulu samstarfi við Hannesarholt á vorönn 2021, sem sýnd var á Hönnunarmars það sama ár.  Nú hefur hönnun hennar  samstarfi. Nú hefur hönnun hennar fengið framhaldslíf og verður til sýnis og sölu í Hannesarholti í plakötum, veggspjöldum, póstkortum, tækifæriskortum og viskustykkjum, til styrktar Hollvinafélagi Hannesarholts.                                                                                                   Soffía Gísladóttir (f. 1974) myndlistarmaður útskrifaðist með B.A gráðu í myndlist frá grafíkdeild  Listaháskóla Íslands árið 2001.  Hún nam þrívíddarhönnun við NTV og síðar hreyfimyndagerð og vefsíðuhönnun við Margmiðlunarskólann.  Soffía flutti til Bresku Kólumbíu, Kanada í tvö ár þar sem hún vann að listsköpun og hélt nokkrar einkasýningar.  Síðar flutti hún til Kaupmannahafnar og Madríd og myndaði stræti og mannlíf á meðan hún bjó þar.  Ferðalög hennar um heiminn kveiktu áhuga hennar á ljósmyndun og hefur hún unnið við listljósmyndun samhliða grafík og teikningu og hefur haldið fjölda einka og samsýninga á verkum sínum.  Árið 2022 lauk Soffía tveggja ára diplómanámi i við textíldeild Myndlistarskóla Reykjavíkur.  Með því námi opnaðist nýr heimur, nýr miðill til listsköpunar. Soffía býr og starfar við sjávarsíðuna í Kjós, Hvalfirði.   Hönnun Soffíu er gerð í jafnvægi við náttúru og fólk, með unun og virðingu fyrir ferlinu frá því að hugmynd fæðist og þar til verkið finnur sér stað á heimili fólks.

Með kveðju frá Hannesi í hönnun Soffíu Gísladóttur

2022-12-12

Þórunn Elísabet myndlistarkona veitir leiðsögn um sýningu sína „Himneskt er að lifa“ í veitingastofum Hannearholts laugardaginn 3.september kl.14. „Sýningin er hugsuð útfrá Hannesi Hafstein, húsinu og sögunni. Bæði sögu Hannesar og fjölskyldu og þeirra sem komu á eftir í húsið. Ómur af lífi og tilfinningum. Texti Hannesar, lín og klæði alls staðar að. Fyrir utan dásamlega orðsnilld Hannesar og nýyrðasmíði var hann opinn fyrir sorginni sinni. Jafningi allra, jafnt barna, kvenna og kóngafólks," segir Þórunn. Jóhanna Friðrika les ljóðin sem ljóðlínurnar eru fengnar úr sem prýða verkin. Sýningin er opin alla daga sem Hannesarholti er opið: alla daga nema sunnudaga og mánudaga kl.11:30-16 og stendur til jóla.

Leiðsögn um sýninguna "Himneskt er að lifa!"

2022-12-03

Öflugir hollvinir

2022-11-01

Hollvinafögnuður

2022-10-26

Bjóðum Friðrik V. velkominn í Hannesarholt

2022-09-29

Hannesarholt opnar á ný

2022-09-27

Aðalfundir Hannesarholts og Hollvina

2022-09-14

Lokun Hannesarholts

2021-06-24

Aðalfundur Hollvina

2021-06-19

Hannesarholt heiðrar Vigdísi Finnbogadóttur á afmælisdaginn

2021-04-14

ÚRSLIT LAGAKEPPNI HANNESARHOLTS, LEYNIST LAG Í ÞÉR

2020-12-04

Metþáttaka í lagakeppni við ljóð Hannesar Hafstein

2020-11-11

Hertar sóttvarnaraðgerðir

2020-10-07

Leynist lag í þér? Lagakeppni Hannesarholts

2020-10-07

Sumarleyfi

2020-07-08

Til hamingju með 19. júní

2020-06-19

Velkomin 17. júní

2020-06-16

Málverkasýningar 2021

2020-06-13

Opið um helgar frá 9. maí

2020-05-05

Aðalfundur Hannesarholts

2020-03-27

Lokað tímabundið - Viðburðum frestað eða streymt

2020-03-24

Nýja pallalyftan okkar sem tekin var í notkun í september er notuð nánast alla daga. Lyftan flytur gesti af gangstétt við Grundarstíg upp útitröppurnar og að útidyrunum, hvort sem um er að ræða einstakling í hjólastól eða standandi. Mikil ánægja er með lyftuna og fögnum við því að hún sé loksins komin. Gestir hringja á dyrabjöllu við gangstétt og starfsmaður kemur til aðstoðar. Verið öll velkomin.

Hjólastólalyfta við útitröppur

Hannesarholt lenti í því síðastliðið sumar, eins og fleiri, að heimasíðan var hökkuð. Við biðjumst velvirðingar á því að okkur hefur ekki unnist ráðrúm til að bæta skaðann að fullu, og því er heimasíðan okkar núna nokkuð ófullkomin. Við bendum á að á staðnum, í Hannesarholti er allt á hreinu, arfur Hannesar Hafstein á sínum stað í bókahillum og á veggjum og heimilisfólkið getur svarað öllu sem ykkur fýsir að vita. Best að senda póst á hannesarholt@hannesarholt.is eða hringja í 511-1904.

Ragnheiður Jónsdóttir - ,,Hannesarholt geymir söguna okkar" viðtal í Vikunni 16.febrúar 2023