Farfuglatónleikar – Magnús Hallur Jónsson
HljóðbergMagnús Hallur Jónsson óperusöngvari og námsmaður í Berlín flytur þýskar óperettur og Kino lög. Bjarni Frímann Bjarnason leikur með á flygilinn.
Farfuglatónleikar – Björg Brjánsdóttir og Bryndís Þórsdóttir
HljóðbergBryndís Þórsdóttir fagottleikari og námsmaður í Kaupmannahöfn og Björg Brjánsdóttir þverflautuleikari og námsmaður í Osló leika ljúfa en fjölbreytta tónlist, allt frá jólalegri barokksónötu til brasilískrar svítu.
Farfuglatónleikar – Rakel Björt Helgadóttir
HljóðbergRakel Björt Helgadóttir hornleikari og námsmaður í Berlín leikur verk eftir Beethoven, Slavický og Schumann. Anna Guðný Guðmundsdóttir leikur með á flygilinn.
Farfuglatónleikar – Sólveig Steinþórsdóttir
HljóðbergSólveig Steinþórsdóttir fiðluleikari og námsmaður í Berlín leikur sónötur eftir Beethoven, Ysaye og Prokofiev. Anna Guðný Guðmundsdóttir spilar með á flygilinn.
Olivier Manoury – Litir vatns og jarðar- myndlistarsýning
Hannesarholt Grundarstígur 10, ReykjavíkLitir vatns og jarðar - vatnslitamyndir eftir Olivier Manoury. Sýningin stendur yfir til 20. janúar.
Vetrarljóð – Píanó og fiðla
Hjóðberg Grundarstíg 10, Reykjavik, Reykjavík, IcelandJane Ade Sutarjo píanó- og fiðluleikari og Hulda Jónsdóttir fiðluleikari, ungar og sérlega hæfileikaríkar tónlistarkonur, halda fyrstu tónleika Hannearholts árið 2017. Hulda og Jane munu leika litrík verk fyrir fiðlu og píanó eftir B. Bartók, E. Ysaÿe,J. Brahms.
Olivier Manoury – bandóneon og vatnslitamyndir
Hannesarholt veitingastofur 1.hæðOlivier Manoury tónlistar- og myndlistarmaður sem nú sýnir vatnslitamyndir í Hannesarholt verður í húsinu mill kl. 15 og 17 með bandóneon harmónikkuna sína áður en hann hverfur af landi brott. Litir vatns og jarðar – vatnslitamyndir eftir Olivier Manoury. Sýningin prýðir veggi Hannesarholts til 20. janúar.
Bókmenntaspjall – Elsku Drauma mín og Ósjálfrátt
HljóðbergHver er munurinn á því að skrifa ævisögu og skáldsögu? Höfundar bókanna Elsku Drauma mín og Ósjálfrátt, Þær Vigdís Grímsdóttir og Auður Jónsdóttir, ræða reynslu sína af því að fanga sömu bráðina í net ólíkra forma. Þriðja skáldkonan, Kristín Ómarsdóttir, leiðir umræðurnar og yfirheyrir þær eftir bestu getu – með aðstoð áhorfenda.
Davíðsljóð í Hannesarholti
Þótt Davíð Stefánsson sé best þekktur sem ljóðskáld, var leiklistin honum einnig mjög hugleikin og hann sendi frá sér fjögur leikrit, auk ljóðabókanna 10 og skáldsögunnar Sólon Íslandus. Í þessu spjalli mun Valgerður H. Bjarnadóttir fjalla um leikritin, tengja þau ljóðunum og velta fyrir sér hvað skáldinu lá á hjarta og hvernig leikritin endurspegla hugmyndir hans og líf.
Bóndadagsveisla með Siggu Eyrúnu og Kalla Olgeirs
HljóðbergKvöldveisla með skemmtilegum og persónulegum tónlistarflutningi Siggu Eyrúnar og Kalla [...]