Hönnunarmars í Hannesarholti – Opnun

Hannesarholt Grundarstígur 10, Reykjavík

Á Hönnunarmars hýsir Hannesarholt vel valda listamenn og hönnuði. Sameiginleg opnun á sýningum þeirra verður fimmtudaginn 23.mars kl.18. Hönnunarmars stendur yfir til 26 mars.

Vetrarferðin – Die Winterreise

Hjóðberg Grundarstíg 10, Reykjavik, Reykjavík, Iceland

Gunnar Guðbjörnsson, tenórsöngvari og Snorri Sigfús Birgisson flytja Vetrarferðina eftir Franz Schubert.

kr.3500

Fjölskyldutónar

Hljóðberg

Sinfónían hefur notið starfskrafta þriggja fjölskyldumeðlima, þeirra Daða, Sesselju og Gunnhildar. Meðal verka á efnisskránni sem þau leika ásamt syninum Kolbeini og vinkonu sinni Júlíu Mogensen óbókvartetta eftir Mozart og Bach, ljúfra laga fyrir fiðlu og píanó, og frumflytja einleiksverk fyrir fiðlu sem Hildigunnur Rúnarsdóttir samdi sérstaklega fyrir Gunnhildi og nefnist Rondó og tilbrigði við gamalt stef.

kr.2500

Heimspekispjall: Fjölmiðlar og loftslagsmál

Hjóðberg Grundarstíg 10, Reykjavik, Reykjavík, Iceland

Guðni Elísson prófessor í Háskóla Íslands fjallar um fjölmiðla og loftslagsmál í fyrra heimspekispjalli annarinnar. Kjúklingasúpa og grænmetissúpa (V) í boði á undan spjallinu í veitingastofunum á 1.hæð á kr.1950 frá kl.18.30. Borðapantanir í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is

Gítarfantasíur einleikstónleikar

Hljóðberg

Ögmundur Þór Jóhannesson gítarleikari heimsækir Ísland um langan veg, til að deila list sinni með löndum sínum á einleikstónleikum í Hannesarholti.

kr.2500

Leiklistarspjall – Sveinn Einarsson

Hljóðberg

Kvöldstund með Sveini Einarssyni leikstjóra og leikhúsfræðingi, sem nýlega hefur sent frá sér bókina Íslensk leiklist III, sem fjallar m.a.um stofnun Þjóðleikhússins. Léttur kvöldverður á sanngjörnu verði á undan í veitingastofunum. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesaraholt.is

kr.1500

Ljóða-og tokkötukvöld Steinunnar og Þorsteins

Hljóðberg

Kvöldstund með Steinunni Sigurðardóttur og Þorsteini Haukssyni, þar sem ljóð Steinunnar og tónsmíðar Þorsteins verða í forgrunni. Tinna Þorsteinsdóttir leikur tvær tokkötur fyrir píanó eftir Þorstein og Arnaldur Arnarson flytur tokkötu fyrir gítar eftir hann. Kjúklingasúpa með heimabökuðu brauði á 2450 frá kl.18.30, borðapantanir í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is.

kr.3000