Björk Níelsdóttir og Kaja Draskler frumflytja ný verk í Hannesarholti
25/01/2018 @ 20:00
| kr.2000Tónskáldin og tónlistarkonurnar Björk Níelsdóttir og Kaja Draskler frumflytja eigin verk þar sem þær leiða áheyrendur í tónlistarlegt ferðalag á landamærum klassískrar tónlistar, djass og spuna.
Kaja Draskler hefur verið áberandi í djass-senunni í Amsterdam, þar sem hún er búsett, en hún hefur samið verk fyrir alþjóðlega hópa, allt frá kórum og kammerhópum til stórsveita og sinfóníuhlómsveita.
Björk Níelsdóttir hefur komið víða fram, m.a. á tónleikaferðalagi með Florence and the Machine og Björk, ásamt því að hafa komið að fjöldamörgum óperuuppfærslum víða í Hollandi.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.00 í Hljóðbergi, tónleikasal Hannesarholts og er miðaverð kr. 2000,-
Opið verður í Veitingastofum Hannesarholts fyrir og eftir tónleika. Borðapantanir í s. 511 1904, á hannesarholt [at] hannesarholt.is eða í gegnum Facebook síðu Hannesarholts.