Heimspekispjall
02/12/2014 @ 20:00 - 21:00
Nýlega kom út bókin Hugleiðingar um gagnrýna hugsun: Gildi hennar og gagnsemi eftir heimspekingana Henry Alexander Henrysson og Pál Skúlason. Í tilefni útgáfunnar verður haldið málþing í Hannesarholti þar sem athyglinni verður sérstaklega beint að hlutverki gagnrýninnar hugsunar í menntun.
Ásgeir Beinteinsson opnar málþingið með hugleiðingum um efni bókarinnar og Henry Alexander flytur erindi um samband gagnrýninnar hugsunar og siðfræði. Loks mun Elsa Haraldsdóttir fjalla um gerð kennsluefnis um gagnrýna hugsun sem hún vinnur að fyrir efstu bekki grunnskóla og fyrsta þrep framhaldsskóla. Aðgangur er ókeypis, en uppröðun í Hljóðbergi verður í kaffihúsastíl og veitingar til sölu.