Hleð Viðburðir

Í vetur mun Snorri Sigfús Birgisson halda þrenna tónleika í Hannesarholti (17. nóv., 9. des. og 19. jan.) og flytja drjúgan hluta þeirra tónverka sem hann hefur samið fyrir píanó.

Um er að ræða einleiksverk en einnig mun Anna Guðný Guðmundsdóttir koma til liðs við Snorra 9. desember og leika með
honum þau tónverk sem hann hefur samið fyrir píanó fjór-hent. Elsta verkið er frá 1975 en hin yngstu eru samin á þessu ári (2018) og hafa ekki heyrst áður .
Flest verkin eru frumsamin en einnig verða leiknar þjóðlagaútsetningar.

Snorri er fæddur 1954 og lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1974. Hann hefur starfað í Reykjavík sem tónskáld, píanóleikari, tónlistarkennari og stjórnandi síðan hann kom heim að loknu framhaldsnámi erlendis (1980).
Hann hefur samið einleiksverk, kammertónlist, raftónlist, kórtónlist og sinfónísk verk. Hann er félagi í CAPUT hópnum.

Píanótónlist eftir Snorra Sigfús Birgisson
Prógram A

Píanó: Snorri S. Birgisson

Toccatina (1975)

Íslensk þjóðlög (útsetningarI

Eos og Selena (2006)

4 lög frá Akureyri (Sönglög, – frumflutningur á píanó-útgáfu)

– hlé –

Portrett nr.1

Divertimento í sól (1998)

Portrett nr.2 (1997)

Upplýsingar

Dagsetn:
17/11/2018
Tími:
16:00 - 17:00
Viðburður Category:

Staðsetning

Grundarstígur 10
Reykjavík, 101 Iceland
+ Google Map
Phone
5111904