Hleð Viðburðir

Dúettinn „Fire and Ice“ leikur tónlist sem heyrir undir franska og íslenska rómantík.

Dúettinn skipa Chrissie Telma Guðmundsdóttir fiðluleikari og Juliana Witt píanóleikari.

Chrissie Telma hélt til Bandaríkjanna haustið 2014
sem Fulbright styrkþegi í meistaranám undir handleiðslu Professor
Danwen Jiang. Hún útskrifaðist vorið 2016 með meistaragráðu frá
Arizona State University og er nú flutt aftur til Íslands. Hún var
ein af sigurvegurum Ungra Einleikara og lék einleik með
Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborg í Hörpunni árið 2012.

Juliana Witt er píanóleikari frá Bandaríkjunum og stundar doktorsnám
undir handleiðslu Dr. Andrew Cambell við Arizona State University.
Hún er með meistaragráðu bæði í pianóleik og meðleik frá
University of North Carolina School of the Arts. Juliana hefur leikið
víðsvegar um Bandaríkin og Evrópu ásamt tríói sínu Trio
Dionysus. Einnig hefur hún kennt píanóleik undanfarin ár.

 

Upplýsingar

Dagsetn:
05/08/2016
Tími:
20:00
Verð:
kr.1500
Viðburður Category:
Tök Viðburður:
,
Vefsíða:
https://midi.is/tonleikar/1/9687/Fronsk_og_islensk_romantik

Staðsetning

Hljóðberg