Síðustu sýningardagar Hjartar Hjartarsonar fara í hönd, þar sem sýningunni lýkur 31.ágúst.
Þessi einkasýning endurspeglar margar stórar upplifanir listamannsins á árinu 2023, einskonar dagbók.
Í byrjun árs fór hann í fyrsta sinn til Afríku, eitthvað sem hann hafði dreymt um síðan hann var ungur drengur. Í safaríferðinni í „Masai Mara“ þjóðgarðinum í Kenýa varð hann fyrir miklum áhrifum af fegurð sléttanna, víðáttunnar, birtunnar, trágróðursins og rauðbrúna jarðvegsins í Afríku. Allt þetta smýgur síðan hljóðlega inn í listsköpun hans á árinu.
Hann fór líka s.l. vetur á sýninguna „Monet og Mitchell“ í Louis Vuitton safninu í París sem hafði mjög sterk áhrif á hann.
Hjörtur lítur á list sína og þá list sem hann sækir í að hún sé eins og blóm til áhorfandans og að áhorfandinn með upplifun sinni sé eins og býflugan sem fær hunang sitt að launum fyrir huga og sál.
Þetta ár hefur jógaiðkun hans líka aukist og hefur tónheilunin í tímunum þar gefið honum aukið rými fyrir listsköpunina.
Hughrif hvers dags fyrir sig koma beint fram í verkunum hans s.s. að fanga fegurðina í allri sinni dýrð.
Sýningin er opin á opnunartímum Hannesarholts, frá 11.30-16 alla daga nema sunnudaga og mánudaga.