Lýra norðursins og saga Auðar djúpúðgu

Hljóðberg

Norska þjóðlagasveitin Lyra fra nord flytur eigið efni í tali og tónum um Auði djúpúðgu og langferð hennar til Íslands. Auk söngs og frásagnar er leikið á tvær lýrur sem byggðar eru á ævafornum fyrirmyndum. Tónlistin leitast við að dýpka skilning á víkingatímanum í gegnum ljóð og lag.

kr.3000

Marbel á ferð og flugi

Hljóðberg

Skemmtilegir tónleikar Marbel Ensemble hópsins frá Rotterdam, þar sem komið er við á ýmsum stöðum og flutt er tónlist í mismunandi samsetningum, skipuðum klarínettu, víólu og sellói. Mayuko Takeda leikur á klarínett, Úlfhildur Þorsteinsdóttir á víólu og Sebastiaan van den Bergh á selló.

kr.2500

Allskonar ást!

Hljóðberg

Allskonar ást! :: Kvöldstund með Siggu Eyrúnu og Kalla Olgeirs, [...]

kr.2900

Harmoníkutónleikar

Hljóðberg

Ástu Soffíu, Mariusar og Kristinar. Öll hafa þau numið harmonikkuleik í Norges musikkhøgskole. Á efnisskránni eru fjölbreytt harmóníkutónlist og margbrotnar hliðar harmóníkunnar verða kynntar.

kr.2000

Menningarnótt í Hannesarholti

Í Hannesarholti verður fjölbreytt dagskrá á Menningarnótt; opnun tveggja listsýninga ásamt veglegri tónleikadagskrá. Meira um málið hér:

CENTURION MONK – Theolonius Monk heiðurstónleikar

Hjóðberg Grundarstíg 10, Reykjavik, Reykjavík, Iceland

Söngvarinn Arnar Ingi spilar í Hannesarholti 20. ágúst n.k. af tilefni 100 ára afmælis jazzgoðsagnarinnar Thelonious Monk! Með honum verður einvalalið tónlistarmanna: Tómas Jónsson á píanó, Sigmar Þór Matthíasson á kontrabassa, Matthías Hemstock á trommum og Ívar Guðmundsson - trompet/flugelhorn.

kr.2500

Anna og Sölvi fara hringinn

Hljóðberg

Frændsystkinin og dúóið Anna Gréta Sigurðardóttir og Sölvi Kolbeinsson leika frumsamda tónlist og útsetningar sem þau hafa unnið að síðustu mánuði. Tónlistin gæti flokkast sem melódískur djass undir þjóðlagaáhrifum þar sem spuninn er í fyrirrúmi. Anna og Sölvi hafa bæði hlotið titilinn „bjartasta vonin“ á íslensku tónlistarverðlaunum, Anna árið 2015 og Sölvi 2016

kr.2000