Hannesarholt fær forvitnilega gesti í kvöldstund fimmtudagskvöldið 19.október, þegar mæðgurnar Jasmina Vajzovic og Azru Crnac deila með gestum sögu sinni. Jasmina kom til Íslands fyrir tuttugu árum, sem flóttamaður, ásamt foreldrum sínum. Hún er innflytjandi, flóttakona, stjórnmálafræðingur og sérfræðingur í málefnum flóttafólks og innflytjenda. Jasmina fæddist í Bosníu og Hersegóvínu og bjó þar sem barn á meðan stríðið geisaði í landinu á árunum 1992-1995. Hún greinir frá upplifun sinni af því búa við stríðsástand og hvernig er að vera barn á flótta í sínu eigin landi. Hún lýsir ástandinu og þeim erfiðleikum sem hún og fjölskylda hennar þurftu að fara í gegnum á þessum tíma sem flóttamenn og greinir frá þeim mótandi áhrifum sem þessi átakanlega lífsreynsla hafði á hana.

Azra Crnac, annars kynslóðar innflytjandi, klínískur atferlisfræðingur og síðast en ekki síst dóttir Jasminu segir frá reynslu sinni af því að vera fædd og uppalin á Íslandi með foreldra sem flúðu stríð. Fjallað verður sérstaklega um persónulega sem og faglega reynslu Özru í móttöku flóttabarna í helstu stofnunum landsins og hvar þau standa í samanburði við innfædda.

Verið öll velkomin. Miðasala á tix.is