Ástu Soffíu, Mariusar og Kristinar. Öll hafa þau numið harmonikkuleik í Norges musikkhøgskole. Á efnisskránni eru fjölbreytt harmóníkutónlist og margbrotnar hliðar harmóníkunnar verða kynntar.
Söngvarinn Arnar Ingi spilar í Hannesarholti 20. ágúst n.k. af tilefni 100 ára afmælis jazzgoðsagnarinnar Thelonious Monk!
Með honum verður einvalalið tónlistarmanna: Tómas Jónsson á píanó, Sigmar Þór Matthíasson á kontrabassa, Matthías Hemstock á trommum og Ívar Guðmundsson - trompet/flugelhorn.
Frændsystkinin og dúóið Anna Gréta Sigurðardóttir og Sölvi Kolbeinsson leika frumsamda tónlist og útsetningar sem þau hafa unnið að síðustu mánuði. Tónlistin gæti flokkast sem melódískur djass undir þjóðlagaáhrifum þar sem spuninn er í fyrirrúmi. Anna og Sölvi hafa bæði hlotið titilinn „bjartasta vonin“ á íslensku tónlistarverðlaunum, Anna árið 2015 og Sölvi 2016