Filters

Changing any of the form inputs will cause the list of events to refresh with the filtered results.

Tónleikar – Hrafnar

Hljóðberg

Hljómsveitina skipa Hlöðver Guðnason, bræðurnir Georg og Vignir Ólafssynir og bræðurnir Helgi og Hermann Ingi Hermannssynir. Allt gamalreyndir tónlistarmenn með langan feril að baki í hinum ýmsu hljómsveitum.

kr.3000

Syngjum saman

Hljóðberg

Pálmar Ólason stjórnar annarri söngstund haustsins. Börn fá frítt í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 kr. Miðasala á midi.is og á hlekknum hér að neðan.

kr.1000

Vangaveltur – Málverkasýning Erlu Axels

Veitingastofur 1.hæð

Erla Axels opnar málverkasýninguna Vangaveltur í Hannesarholti laugardaginn 14.október kl.14. Um sýninguna segir hún: "í fjarlægð sé ég ofursmá hús í birtu borgarmarkanna og þegar ég lít mér nær sé ég mosann, grágrýtissprungur og breytileg jarðlög í klettum." Verkin eru unnin í blandaða tækni. Kórfélagar Erlu hjá Margréti Pálma syngja nokkur lög við opnunina.

Heilsuspjall – Sambýli lífvera á jörðinni

Hljóðberg

„Frá lús og mús til mannanna húss og trúss.“ Michael Clausen og Einar Kárason Í heilsuspjalli Hannesarholts fimmtudaginn 19. október munu ofnæmislæknirinn Michael Clausen og rithöfundurinn Einar Kárason fá frjálsar hendur til að spjalla um sambúð manna og annarra lífvera á íslenskum heimilum í blíðu og stríðu, í vísindum, sögnum og bókmenntum. Opið verður í Veitingastofum Hannesarholts fyrir og eftir viðburð. Fiskisúpa og léttir grænmetisréttir frá kl.18.30 og Happy hour með vínveitingum á tilboðsverðum milli kl. 17:00 – 19:00

kr.1500

Syngjum saman

Hljóðberg

Klukkutíma söngstund fyrir almenning þar sem textar birtast á tjaldi og allir taka undir. Vinkonuhópurinn Skotfjelagið og makar stjórna stundinni að þessu sinni. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 kr aðgangseyri.

kr.1000